Þrjú grunuð um rán

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gær vegna ráns. Ekki kemur fram í dagbók hvar það átti sér stað en Stöð 1, sem sinnir verkefnum í miðbæ og vestari hluta borgarinnar, svaraði kallinu. Í dagbók kemur fram að tveir karlmenn og ein kona hafi verið handtekin vegna málsins og að þau hafi öll verið vistuð í fangaklefa.
Þrjú grunuð um rán

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar