Pollar brotnuðu og uppsjávarskip losnaði frá bryggju

Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá því í Facebook-færslu að uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA-11, hafi losnað frá bryggju við höfnina á Krossanesi á Akureyri í veðurofsanum. Tilkynningin barst lögreglunni um hálf tíuleytið í gærkvöldi.Bryggjupollarnir á bryggjunni höfðu þá brotnað undan álagi og þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn var skipið komið nokkru frá bryggjunni og hékk aðeins á einni taug.Mikið rót var á sjónum við höfnina og ekki að því hlaupið að koma áhöfn um borð til að taka stjórn á skipinu. Lóðsinn var ræstur út og tókst að koma mönnum í skipið sem gátu ræst vélarnar.Með aðstoð lóðsins var skipinu komið frá höfninni og því siglt að Oddeyrarbryggju. Ekki er talið að skipið sé tjónað en tjón á hafnarmannvirkjum í Krossanesi verður kannað betur í fyrramáli
Pollar brotnuðu og uppsjávarskip losnaði frá bryggju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar