Hafnfirðingar byrjaðir að hita upp fyrir jólin

Hafnfirðingar eru byrjaðir að hita upp fyrir jólin og Jólaþorpið var opnað á Thorsplani seinni partinn í dag. Þorpið er vinsælt í jólaundirbúningnum en þangað komu ríflega 65 þúsund gestir í fyrra.Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir skemmtu gestum og gangandi á opnunni og núna rétt fyrir fréttir var tendrað á jólatrénu í þorpinu. Það er tólf metra normannsþinur sem vegur rúmlega tonn og var hoggið í heimagarði í Cuxhaven í Þýskalandi, sem er vinabær Hafnarfjarðar.
Hafnfirðingar byrjaðir að hita upp fyrir jólin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar