Frumvarp til breytinga á raforkulögum á að taka á innviðaskuld í flutnings- og dreifikerfi raforku, segir umhverfis- orku- og loftslagsráðherra. Einfalda á leyfisferli, lækka upphafskostnað virkjana og einfalda ferli við eignarnám lands.Frumvarpið er í samráðsgátt stjórnvalda. Stofnanir og almenningur hafa tvær vikur til að koma athugasemdum sínum við frumvarpið á framfæri.Umhverfisráðherra vill flýta meðferð eignarnámsmála, lækka upphafskostnað nýrra virkjana og slaka á viðmiðum fyrir rammaáætlun. Umfangsmiklum breytingum á raforkulögum er ætlað að vinna á innviðaskuld í kerfinu.Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir gríðarlega innviðaskuld í flutnings- og dreifikerfi raforku. „Og það bitnar harðast á dreifðum byggðum á viðkvæmum kerfissvæðum þar sem raforka