Þjónusta Microsoft virðist víða komin í samt lag en fyrirtækið segist enn vinna að því að rannsaka rót vandans. Milljónir manna höfðu ekki aðgang að tölvupóstinum sínum í nærri hálfan sólarhring.Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri hjá netöryggissveit CERT-IS, segir Microsoft enn ekki hafa gefið út hvað olli biluninni, annað en að netþjónar hafi hætt að virka. GERVIGREINDIN ÖFLUG VIÐ AÐ FINNA VEIKLEIKA Í KERFUM Spurður hvort bilunin sé mögulega sú stærsta í sögunni segir Bjarki hana vissulega mjög umfangsmikla, í ljósi þess hve mörg fyrirtæki og stofnanir reiði sig á kerfi Microsoft.„Það sem þetta og sams konar atvik hjá tæknirisum kenna okkur, eins og Cloud Flare-atvikið í febrúar á þessu ári, er að við ættum ekki að reiða okkur um of á einn birgja og ættum að gera ráðstafanir og viðbragð