Frumvarp um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Framleiðsla barnaníðsefnis er að mestu gróðadrifin, eins og önnur skipulögð brotastarfsemi, segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.Í frumvarpinu eru skipulagðir brotahópar skilgreindir á skýrari hátt en áður og hámarksrefsing fyrir þátttöku í slíkri starfsemi er hækkuð úr fjórum árum í átta.Hægt verður að þyngja refsingar í málum sem varða skipulagða brotastarfsemi eða ef börn eða ungmenni eru fengin til að taka þátt í starfseminni, ásamt því að hámarkslengd gæsluvarðhalds, í alvarlegri málum, verður sex mánuðir í stað tólf vikna.Þá verður heimilt að gera upptæk verðmæti sem ætla má að séu afrakstur brotastarfsemi. FJÁRMAGNIÐ HJARTAÐ Í SKIPULAGÐRI BROTASTARFSEMI „Hjartað í þessar