Gertrude Stein og Alice B. Toklas áttu eina af áhugaverðustu ástarsögum heimsbókmenntanna; tvær lesbíur sem lifðu saman sem hjón í París á fyrri hluta 20. aldar og voru í hringiðu evrópsks listalífs á mestu umbrotatímum módernismans. Gertrude Stein var bandarískur rithöfundur og listasafnari, sem er líklega þekktari fyrir goðsögnina sem hún skapaði í kringum nafn sitt heldur en eiginleg verk...