Nokkrir skólar þegar byrjaðir að læsa öllum inngöngum nema einum

Nokkrir skólar í Reykjavíkurborg eru þegar byrjaðir að vinna samkvæmt verkefninu Einn inngangur, sem felur í sér að allar dyr skóla eru læstar nema ein á kennslutíma. Foreldrar barna í Fossvogsskóla voru í dag látnir vita að byrjað væri að vinna samkvæmt verkefninu.„Við tökum þátt í því verkefni og munum loka öllum inngöngum á meðan skólastarf stendur yfir á opnunartíma skóla,“ segir í tölvupóstinum.„Aðalinngangur skólans er þó alltaf opinn og geta foreldrar komið þar inn á skólatíma en verða að gera vart við sig á skrifstofunni í Bjartalandi.“Verkefnið er til vinnslu innan Reykjavíkurborgar og segir Eyþór Víðisson, öryggisstjóri vinnuverndar hjá Reykjavíkurborg, að það snúist um það að stýra betur aðgengi að grunnskólum Reykjavíkurborgar. Hann vill þó ekki nefna hvaða skólar séu byrjaðir.
Nokkrir skólar þegar byrjaðir að læsa öllum inngöngum nema einum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar