Kærunefnd útlendingamála hefur fellt ákvörðun Útlendingastofnunar, um að vísa albönskum karlmanni úr landi, úr gildi. Maðurinn hlaut dóm í Albaníu fyrir morð árið 2007 og er grunaður um nokkurn fjölda brota hér á landi, meðal annars kynferðisbrot gegn barni. Kærunefndin féllst ekki á það með Útlendingastofnun að af manninum stafaði ógn gagnvart öryggi ríkisins eða almannahagsmunum. Þó var þar ekki tekið mið af meintu kynferðisbroti þar sem gögn um það voru ekki talin fullnægjandi.