Náttúrunni ætlað að greiða fyrir hagvöxt til skamms tíma

Engin rök eru fyrir því að lækka stærðarmörk virkjanakosta rafmagns utan rammaáætlunar niður í tíu megawött úr 25, segir Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar.Þorgerður segir að frumvarpið bendi til þess að ríkisstjórnin sé orðin örvæntingarfull í tilraunum sínum til að auka hagvöxt í landinu. Þessi viðmiðunartala hafi birst eins og skrattinn úr sauðaleggnum.„Það virðist eiga að vera íslensk náttúra sem borgar brúsann. Þetta verður kannski innspýting til styttri tíma en til lengri tíma eru þetta mjög slæmar ákvarðanir,“ segir Þorgerður. LANDVERND KVARTAR UNDAN STUTTUM UMSAGNARTÍMA Eins og áður sagði þurfa rafaflsvirkjanir undir 25 megawöttum að fara gegnum rammaáætlun gangi frumvarpið eftir og viðmiðið fyrir varmaafl fer úr 50 megawöttum í 125 megawött. Sérreglur um vin
Náttúrunni ætlað að greiða fyrir hagvöxt til skamms tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar