Hundruð spenntra spilara komu á kvöldopnun verslunar Elko í Lindum í Kópavogi til að sækja tölvuleikinn eftirsótta, Grand Theft Auto 6, sem þeir höfðu forpantað. Kvöld- og miðnæturopnanir vegna tölvuleikjaútgáfu voru algengar fyrir nokkrum árum en með breyttum neytendavenjum og áherslu á netverslun eru þær nánast hættar.Nú stefnir í að framleiðslu tölvuleikjadiska fyrir PlayStation verði hætt árið 2028. Það er ekki óhugsandi að kvöldopnunin í gærkvöldi hafi verið sú síðasta því það er alls ólíklegt að einhver leikur verði jafn eftirsóttur á næstu árum.Guðmundur Atli Hlynsson fréttamaður RÚV fór í Elko og tók púlsinn á spenntum tölvuleikjaunnendum.Hundruð gerðu sér ferð í verslun Elko í Lindum á útgáfu tölvuleiksins eftirsótta, GTA 6. Forstöðumaður markaðssviðs Elko segir að þetta gæti hafa