Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur breytt aðalnámskrá grunnskóla. Breytingin felur í sér að á yfirstandandi skólaári fái nemendur í 10. bekk einkunnir í tölustöfum í stað bókstafa.„Með breytingunni eru skólar hvattir til að nota kvarðann 1–10 við námsmat á skólaárinu, svo sem fyrir einstök próf og verkefni,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Þar segir að markmiðið sé að gera einkunnir skýrari, auka jafnræði milli skóla og veita bæði nemendum og foreldrum betri upplýsingar um stöðu náms og framfarir.Við útskrift á að nota kvarðann 4–10. „Ekki er talið réttlætanlegt eða uppbyggilegt að gefa grunnskólabarni 1–3 í lokaeinkunn eftir heilan skólavetur.“ Hvað merkja einkunnirnar? Einkunnir eiga að lýsa því hve vel nemandi hefur náð hæfni sem aðalnámskrá gerir ráð fyrir.4: Ne