Það hefur ekki farið framjá neinum að brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar bar nokkuð brátt að. Eftir sautján ár í starfi hefði mátt ætla að starfslok óumdeilds forstjóra yrðu með öðrum hætti. Samskiptin við stjórn fyrirtækisins virðast hins vegar hafa verið komin á það vondan stað að lítið svigrúm var eftir fyrir farsæl málalok.