Ungverskur karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að flytja rúmlega hálft kíló af kókaíni til Íslands. Fíkniefnin voru falin innvortis þegar maðurinn kom til landsins með flugi frá Amsterdam. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær, 12. nóvember. Maðurinn, Mihaly Horvath, er fæddur árið 1991 og er ungverskur ríkisborgari. Hann var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot...