Fjögurra herbergja einbýlishús við Grænumýri 13 á Akureyri hefur verið sett á sölu fyrir 65,9 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1952 og er samtals 105 fermetrar að stærð. Við eignina er stór og gróinn garður sem snýr í suður, auk hundagerðis og gróðurhúss. Þá má sjá glæsilega list á húsinu sjálfu. Húsið er steinsteypt og stendur á steyptum kjallara....