Hver á að tala fyrir Evrópu?

Fulltrúar Evrópu verða með á næsta samningafundi um friðarsamkomulag í Úkraínu, sagði Volodymyr Zelensky Úkraníuforseti í gærkvöld. „Það er mikilvægt fyrir okkur, því þetta stríð er í Evrópu og við verðum hluti af Evrópusambandinu.“En spurningunni um það hver eða hverjir eiga að vera í forsvari fyrir Evrópu í þessum viðræðum er enn ósvarað - og um það ætla leiðtogar Evrópusambandsins að ræða í dag, þegar þau setjast niður á óformlegum fundi í ráðstefnuhöllinn í Dublin, daginn eftir að EPC leiðtogafundinum lauk á sama stað.Evrópskir leiðtogar hafa í langan tíma krafist þess að hagsmunir Evrópu og Evrópusambandsins verði ekki fyrir borð bornir, þegar og ef samningaviðræður hefjast um friðarsamkomulag eða vopnahlé í Evrópu; Úkraína er jú hluti af Evrópu, sækist eftir aðild að Evrópusambandinu
Hver á að tala fyrir Evrópu?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar