Námsbraut í Íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands stendur fyrir málþingi um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Málþingið verður haldið í fyrirlestrasal Eddu í dag klukkan 10:00 til 11:15 og verður hægt að fylgjast með því í beinu streymi á Vísi.