Haraldur Bernharðsson prófessor hefur þungar áhyggjur af þeim fyrirætlunum stjórnvalda að leggja full skólagjöld á nemendur frá löndum utan EES sem hyggja á nám við Háskóla Íslands. Meistaranám í miðaldafræðum gæti þar með kostað þessa nemendur fimm milljónir í skólagjöld.