Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs skullu að minnsta kosti tveir bílar saman á níunda tímanum í morgun við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Sjónarvottar sögðust þó hafa séð að minnsta kosti þrjá tjónaða bíla.Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að sjúkrabíll og dælubíll hafi verið sendir á staðinn. Ekki liggur fyrir hvort neinn verði fluttur á slysadeild. „Það er ekki stórslys,“ segir hann.Gera má ráð fyrir að nokkrar umferðartafir hljótist af slysinu enda eru gatnamótin umferðarþung, sérstaklega á þessum tíma dags.