„Í aðalatriðum er þetta svipað, gengur í norðanstórhríð á norðanverðu landinu í kvöld, færist svo yfir á austurhluta landsins í nótt, þar sem veðrið verður verst, og lokahnykkurinn í fyrramálið,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.