Notendur ná ekki sambandi víða um heim

Ekki liggur fyrir hvað veldur miklum truflunum í kerfum Microsoft sem hafa áhrif víða um heim. Fyrirtækið telur þó að tengingarvandamálið sé ekki til komið vegna tölvuárásar á kerfi þess heldur megi rekja það til aukins álags á innviði þess.Hundruð þúsunda, eða jafnvel milljónir, notenda hafa átt í vandræðum með forrit svo sem Outlook, Teams og Copilot frá því í gærkvöldi. Truflanir hafa náð til yfir 70 landa.Um klukkan tvö í nótt hafði Microsoft náð að laga umferð um Teams en þjónustan að baki tölvupóstinum Outlook glímir enn við nokkur vandamál.Rétt fyrir klukkan átta greindi BBC frá því að tilraunir til að auka getu og stöðugleika kerfa Microsoft hefðu borið einhvern ávöxt, að sögn talsmanna. Truflanirnar hafa haft áhrif á önnur kerfi sem nýta sér tækni Microsoft, til dæmis gervigreinda
Notendur ná ekki sambandi víða um heim

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar