Víðtæk bilun hefur truflað þjónustu Microsoft um allan heim í meira en hálfan sólarhring. Notendur í minnst sjötíu og fjórum löndum hafa átt í vandræðum með að tengjast tölvupósti og samskiptaforritum fyrirtækisins en Microsoft segir að ekki sé um netárás að ræða.