Þrír unglingar lentu í bílveltu

Þrír unglingar voru í bíl sem valt á Akureyri rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þeir voru fluttir burt með sjúkrabifreið en virðast ekki vera slasaðir. Þetta segir María Borg Gunnarsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Óhappið varð þar sem Drottningarbraut mætir veginum sem liggur frá Kjarnaskógi. Unglingarnir eru um 17 ára gamlir. María segir að svo virðist sem óhappið hafi orðið vegna hálku.
Þrír unglingar lentu í bílveltu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar