Fjöldi manns hefur síðasta hálfa sólarhringinn tilkynnt um truflanir á þjónustuforritum á borð við Outlook, Teams og gervigreindarforritið Copilot sem hefur haft töluverð áhrif á vinnu þess.Microsoft segir í tilkynningu að erfiðara hafi reynst að laga truflanirnar en gert var ráð fyrir. Þær hafa nú staðið yfir í ellefu klukkustundir og náð til notenda í sjötíu og fjórum löndum.Skömmu eftir klukkan fjögur í nótt var greint frá því að tenging væri komin aftur á að hluta en enn þá væri unnið að því að leysa vandamálið að fullu.Microsoft tekur það fram að tengingarvandamálið sé ekki til komið vegna tölvuárásar á kerfi fyrirtækisins heldur megi rekja truflanirnar til aukins álags á innviði þess.Svo virðist sem margir netþjónar hafi óvænt misst tenginguna og því hafi aukinni umferð verið beint á