Leó XIV páfi hitti í gær sex þolendur kynferðisofbeldis af hálfu kaþólskra presta í Perú. Nokkrir þolendanna tengdust kaþólsku hreyfingunni Sodalitium Christianae Vitae (SCV) sem lágu í mörg ár undir ásökunum um að kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi viðgengist innan raða hennar.Samkvæmt tilkynningu frá Vatíkaninu hitti páfinn hvern þolanda fyrir sig og hlustaði á sögur þeirra. Þá ræddi hann við þau um það hvernig stuðla megi að hugarfarsbreytingu innan kaþólska samfélagsins með því að hlusta á þolendur, leita lausna og skapa öruggt umhverfi innan kirkjunnar. AFHJÚPUN 2015 SKILAÐI LITLU Íhaldssami félagsskapurinn Sodalitium Christianae Vitae var stofnaður á 8. áratugnum og boðaði hreinlífi og hlýðni. Hann varð bæði fjölmennur og valdamikill og sankaði að sér töluverðum fjármunum