Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, segir endurkaupaáætlun Þórkötlu ekki taka tillit til ólíkra aðstæðna Grindvíkinga. Fasteignafélagið Þórkatla kynnti í gær endurkaupaáætlun þar sem Grindvíkingum býðst að kaupa til baka fasteignir sem félagið keypti eftir að bærinn var rýmdur vegna eldsumbrota. „Það er enginn að biðja um að fá eitthvað frítt en við viljum byggja upp það samfélag. Við viljum fá að vera þarna og staðan okkar er ólík eftir því hvort við keyptum, hvort við eigum fasteignir annars staðar, hvort við vorum að leigja,“ segir Kristín.Fasteignafélagið Þórkatla kynnti í gær endurkaupaáætlun og býðst Grindvíkingum að kaupa aftur fasteignir sem félagið keypti af íbúum. Grindvíkingur segir að líta þurfi á málið öðrum augum, málið snúist um endurreisn en ekki fasteignaviðskipti.P