Skjálfti af stærðinni 4,2 varð í Bárðarbungu rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Enn hafa engir eftirskjálftar mælst en skjálftar af þessari stærðargráðu eru ekki óalgengir í Bárðarbungu. Síðast varð skjálfti af svipaðri stærð þann 10. nóvember. Skjálftar sem þessir hafa mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Tómas Guðbjartsson