Koma í veg fyrir að íþróttamenn frá Rússlandi og Belarús fái að keppa í Noregi

Norska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að hún ætli að koma í veg fyrir að atvinnuíþróttamenn frá Rússlandi og Belarús komist til Noregs til þess að keppa í íþróttum. Finnar tilkynntu svipaðar aðgerðir fyrr í dag. Ætlunin er að hindra það að íþróttafólk frá þessum ríkjum fái að taka þátt í keppnum og mótum meðan innrásarstríð Rússa í Úkraínu geisar. Í yfirlýsingu norsku ríkisstjórnarinnar segir að þó að strangar reglur séu í gildi fyrir Rússa og Belarússa sem sækja um dvalarleyfi í landinu hafi nýlega verið slakað á reglum hjá alþjóðaíþróttasamböndum. Lögreglu verður kleift að meina íþróttafólki og starfsfólki þeirra inngöngu í landið.
Koma í veg fyrir að íþróttamenn frá Rússlandi og Belarús fái að keppa í Noregi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar