Kærður fyrir líkamsárás og ofbeldi gegn lögreglumönnum

Einn var kærður fyrir líkamsárás og ofbeldi gegn lögreglumönnum í Reykjavík í dag og annar fyrir líkamsárás og hnífaburð. Fimm eru vistaðir í fangageymslum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Í þriðja málinu er einn kærður fyrir að stunda tilhæfulaus símtöl í neyðarnúmer lögreglu. Sá var kærður fyrir brot á lögum um samræmda neyðarsvörun og gabb.Ekki fylgdu frekari upplýsingar um málin í tilkynningunni og ekki náðist í lögreglu við vinnslu fréttarinnar.
Kærður fyrir líkamsárás og ofbeldi gegn lögreglumönnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar