Tindastóll vann Lausanne frá Sviss 79-69, á Sauðárkróki í kvöld í ENBL Evrópukeppninni í körfubolta. Þetta var fyrsti heimaleikur Tindastóls í keppninni á tímabilinu en liðið hafði áður unnið þrjá útileiki. Stólarnir leiddu með fimm stigum í hálfleik, 41-36, og bættu við forskotið í síðari hálfleik.Nemanja Djurisic var stigahæstur heimamanna með 17 stig auk þess sem hann tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Ragnar Ágústsson skoraði 13 stig og tók sex fráköst en Sigtryggur Arnar Björnsson og Ade Murkey skoruðu ellefu stig hvor.Tindastóll er í öðru sæti deildarinnar með átta stig, líkt og þýska liðið Syntainics MBC sem situr í efsta sætinu. Næsti leikur Tindastóls í keppninni verður gegn Dubrava í Króatíu á þriðjudaginn.