Það er eins og ganga inn á verkstæði jólasveinanna að koma í húsakynni KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík þar sem verkefnið Jól í skókassa stendur sem hæst.Jólagjafir í skókössum hafa verið sendar til Úkraínu í 23 ár. Fyrstu árin söfnuðust um 500 kassar en nú eru þeir taldir í þúsundum.Það er einfalt að vera með og leggja sitt af mörkum.Efnalítil börn í Úkraínu hafa í áratugi fengið íslenskar skókassagjafir um jól. Verkefnið fangar hinn sanna jólaanda, segir sjálfboðaliði. FIMM FLOKKAR Í HVERN KASSA Óskað er eftir því að í hvern skókassa fari að minnsta kosti einn hlutur úr hverjum af þeim fimm flokkum sem beðið er um.Flokkarnir eru skóladót, leikföng, hreinlætisvörur, föt og sælgæti.Þegar búið er að fylla kassa er honum komið á skilastað. Allir kassarnir eru yfirfarnir og flokkaðir