Meindýraeyðir fetar í fótspor galdramanns

Meindýravarnir Norðurlands vinna hörðum höndum við að verja þorpið í Hrísey fyrir ágangi músa sem virðast hafa fundið bólstað í eyjunni undanfarin tvö til þrjú ár. Settar hafa verið upp rúmlega 50 gildrur. Í hverri gildru er eitur sem músin sækir í.Ólafur Pálmi Agnarsson, meindýraeyðir, segir markmiðið að verja þorpið en ólíklegt þykir að takist að útrýma öllum músum í eynni:„Við þurfum að halda þorpinu hreinu svo þær séu ekki að koma inn og skemma hluti,“ segir Ólafur. ÞJÓÐSAGAN UM GALDRAMANNINN OG SKAMMRIFIÐ Mýs höfðu ekki sést í Hrísey síðan 1650 þar til nýverið. Þá var brugðið á það ráð að fá galdramann til þess að útrýma músunum, Þorvald Rögnvaldsson frá Sauðanesi. Þjóðsagan segir að hann hafi látið grafa holu nyrst í eyjunni og síðan tekið stórt skammrif úr sauð og dregið það á ef
Meindýraeyðir fetar í fótspor galdramanns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar