Samninganefnd Reykjavíkurborgar fær til 30. apríl á næsta ári til að skila tillögum að nýjum samningum um bensínstöðvarlóðir. Borgin vill fá greitt markaðsverð fyrir aukinn eða breyttan byggingarrétt og ný lóðarleiguréttindi. Í eldri samkomulögum var gert ráð fyrir að fella niður greiðslu fyrir aukinn byggingarrétt í sumum tilfellum til að liðka fyrir að bensínstöðvar vikju fyrir íbúðum eða annarri uppbyggingu.