Palestínskar fjölskyldur á flótta sjá fram á erfiðan vetur

Þótt ár sé síðan vopnahléssamkomulag gekk í gildi á Gaza býr fólk enn við erfiðar aðstæður í tjaldborgum flóttamannabúða og nær allir innviðir, meðal annars fráveitukerfi, eru í rúst eftir tveggja ára gegndarlausar árásir Ísraelshers. Fyrsti stormur vetrarins gekk yfir í vikunni með úrhellisrigningu og flóðum sem sópuðu burt tugum þúsunda tjalda.Það sem gerir ástandið enn alvarlegra er að stjórnvöld í Ísrael takmarka verulega vöruflutninga inn á Gaza. Hjálparsamtök og alþjóðastofnanir þrýsta á að leyft verði að veita neyðaraðstoð án hindrunar, en á meðan halda árásir Ísraela á Gaza áfram. Í morgun voru sex drepnir og á þriðja tug særðust í loftárás á Nasser-sjúkrahúsið í Khan Younis, eitt fárra sem enn eru starfhæf að einhverju leyti.
Palestínskar fjölskyldur á flótta sjá fram á erfiðan vetur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar