Inga Sæland: „Nú getum við boðið heim“

Framkvæmdir eru hafnar við nýja Þjóðarhöll í Laugardal en byggingin er samstarfsverkefni ríkis og borgar. Mennta- og barnamálaráðherra segir að nú sé hægt að fara að bjóða öðrum þjóðum heim til kappleikja.Lengi hefur staðið til að hefja framkvæmdir við Þjóðarhöll - fjölnota íþrótta og viðburðahús. Til dæmis átti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi borgarstjóri fundi með forystumönnum Handknattleikssambands Íslands árið 1994 um að reisa nýtt íþróttahús fyrir HM í handbolta karla sem haldið var í Reykjavík 1995.En svo bar til tíðinda í dag.Fyrsta skóflustungan var tekin og um það sáu ungir íþróttamenn úr aðildarfélögum ÍSÍ og ungmenni úr Þrótti og Ármanni. UM ÞRIÐJUNGUR AF KRINGLUNNI Höllin verður um 17.700 fermetrar - sem er um þriðjungur af Kringlunni og tæplega einn fjórði af Smáral
Inga Sæland: „Nú getum við boðið heim“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar