Íbúar kvarta til sveitarfélaga vegna búsetuúrræða fyrir börn

Einkarekin búsetuúrræði fyrir börn í fjölbýlishúsum hafa valdið íbúum í sama húsi vanda og ónæði. Þeir hafa kvartað til bæjaryfirvalda í Kópavogi og Hafnarfirði sem ekki hafa tekið undir kvartanir. Eftir kæru íbúa í öðru húsinu keypti sá sem rekur úrræðið þau út úr húsinu.Hið opinbera greiðir marga milljarða á ári til einkarekinna búsetuúrræða eins og fram kom í fréttaþættinum Kveik í lok október. Fjölskyldum í sömu húsum hefur brugðið mjög þegar svoleiðis starfsemi byrjar í húsinu.Þriggja barna faðir sem býr í þríbýlishúsi í Kópavogi segist hafa orðið var við aukna umferð fólks í september í fyrra og var þá sagt að starfsemi hjá einreknu búsetuúrræði Hrafnkötlu væri hafin. „Þetta hefur verið oft og tíðum óþægilegt og skapað kvíða.“
Íbúar kvarta til sveitarfélaga vegna búsetuúrræða fyrir börn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar