Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur vonast til að Þórkatla endurskoði endurkaupaáætlun sína sem kynnt var fyrir Grindvíkingum í gær. Bæjarstjórn Grindavíkur lýsti yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu fasteignafélagsins Þórkötlu í dag.Haldinn var íbúafundur í Gjánni í Grindavík í gær þar sem íbúar sögðust heldur ekki treysta fasteignafélaginu.„Það sem snýr fyrst og fremst að Grindvíkingum er að samráð og samtal við Grindvíkinga um það að endurkaupaáætlunin taki raunverulega mið af aðstæðum hefur bara verið of lítið og of lítið af tillögum Grindvíkinga hefur farið inn í endurkaupaáætlunina,“ segir Pétur.Íbúum stendur til boða að kaupa eignirnar til baka á upprunalegu söluverði, leigja þær eða taka þær frá í rúmt ár. Pétur segir þó að ekki sé um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða.„Þe