Sprungur höfðu myndast fyrir hrunið: Tvö börn meðal hinna látnu

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segist verulega uggandi yfir fregnum um, að framkvæmdir hafi haldið áfram nærri húsi sem hrundi í Brooklyn-hverfi borgarinnar í dag, þrátt fyrir viðvaranir um hættuástand.Minnst átta létust þegar þriggja hæða húsið hrundi, þar af tvö börn. Fjöldi annarra er slasaður.Skýrslur sýna hvernig sprungur höfðu þegar myndast á norðurvegg hússins en þrátt fyrir það héldu byggingaverktakar áfram að grafa fyrir húsgrunni á lóðinni við hliðina.Mamdani segir að að borgaryfirvöld ætli að rannsaka málið til hlítar og skila ábyrgðinni þangað sem hún ætti heima.Um 250 slökkviliðsmenn þustu að byggingunni eftir að hún hrundi í nótt. Leitarhundar hafa fundið bæði lífs og liðna í rústum hússins í dag.Bygging til hliðar við þá sem hrundi varð einnig fyrir miklum skemmdum.
Sprungur höfðu myndast fyrir hrunið: Tvö börn meðal hinna látnu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar