Íslendingar ætla greinilega að vera viðbúnir en mikil söluaukning hefur verið á þeim hlutum sem mælt er með að eiga í bæklingnum Verum viðbúin sem almannavarnir gáfu út í byrjun mánaðarins. Bæklingnum er ætlað að stuðla að því að heimili og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast.Í síðustu viku var greint frá því almenningur, sérstaklega eldra fólk, hefði tekið út reiðufé í stórum stíl og sumir háar upphæðir vegna upplýsinga í bæklingi almannavarna. Í gær var frétt um að geymsluþolinn matur hefði rokið út í matvöruverslunum. Í dag eru það svo rafmagnstækin sem hafa horfið úr hillum verslana.„Við erum að sjá alveg svakalega aukningu á sölu á útvörpum, rafhlöðum og talstöðvum líka. Ég veit ekki hvort það tengist líka rjúpnatímabilinu en við erum allavega að sjá mikla aukning