Virkjanir undir 25 MW þurfa ekki að fara í gegnum rammaáætlun ef frumvarp Umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðuneytisins nær fram að ganga. Frumvarpið á að einfalda leyfisferla og flýta uppbyggingu orkuinnviða. Í dag þurfa virkjanir undir 10 MW ekki að fara í rammaáætlun.Í sama frumvarpi er lagt til að meðferð mála um eignarnám lands vegna raflína verði settar tímaskorður. Ekki er lagt til að framkvæmdir geti hafist við raflínur áður en því ferli er lokið, líkt og ráðherra hafði áður kynnt.Einnig gæti kostnaður nýrra virkjana við að tengjast raforkukerfinu lækkað ef tengingin hefur í för með sér ávinning fyrir kerfið í heild.