Sex prósent ungmenna á aldrinum 13–17 ára á höfuðborgarsvæðinu, um 930 ungmenni, tilheyra vinahópum sem uppfylla skilgreiningu á unglingagengjum samkvæmt nýrri rannsókn íslenskra afbrotafræðinga. Félagsleg jaðarsetning, mismunun og erfiðar fjölskylduaðstæður geta aukið líkur á að ungmenni rati í slæman félagsskap sem mætir alþjóðlegum viðmiðum um unglingagengi. Eftirlit foreldra virðist aftur á móti hafa verndandi áhrif.Um 930 ungmenni á aldrinum 13–17 ára á höfuðborgarsvæðinu tilheyra vinahópum sem flokkast sem unglingagengi samkvæmt nýrri rannsókn íslenskra afbrotafræðinga.Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er byggð á gögnum úr íslenska hluta alþjóðlegu rannsóknarinnar International Self-Report Delinquency Study. Rúmlega þrjú þúsund ungmenni tóku þátt í rannsókninni o