Hið minnsta tvö hjólhýsi í eigu starfsmanna fasteignafélagsins Þórkötlu voru geymd í bílskúr í Grindavík í óleyfi. Grindvíkingur segist ekki óska neinum atvinnumissi en segist furða sig á því að starfsmenn geti gert það sem þeim detti í hug og fái einungis tiltal frá sínum yfirmanni.