Borgarráð hefur vísað frá tillögu um að opna aftur fyrir rafmagn og vatn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða yfir veturinn. Tillagan var tekin fyrir á fundi borgarráðs í morgun þar sem meirihlutinn vísaði til þess að slökkviliðið krefjist umfangsmikilla úrbóta á brunavörnum á svæðinu.