Ullarverð til bænda hríðfellur annað árið í röð

Ullarverð Ístex til bænda lækkar um meira en 30 prósent á næsta ári, annað árið í röð. Ístex stendur enn í skuld við bændur, en sauðfjárbóndi í stjórn fyrirtækisins hefur trú á að reksturinn fari að taka við sér.Hvít lambsull í hæsta gæðaflokki, verðmætasta ull bænda, var í fyrra metin á 613 krónur kílóið hjá Ístex. 398 krónur er verð næsta árs. Þetta er tvöfalt minna en fékkst fyrir ullina fyrir þremur árum. Hvað fá bændur fyrir ullina? Bændur rýja sauðfjárstofninn sinn minnst einu sinni á ári, eftir að búið er að hýsa fé á haustin. Ullin er klippt af hverri kind og send til vinnslu hjá fyrirtækinu Ístex. Bændur fá greitt fyrir ullina eftir þyngd, gæðum og lit.Þetta eru verðin sem bændur fengu fyrir hvert kíló í ár - og svo verðin fyrir næsta ár: LEIÐINLEGT AÐ VERÐIN LÆKKI EN BÆNDUR SÝN
Ullarverð til bænda hríðfellur annað árið í röð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar