„Ísland hefur verið með sinn eigin seðlabanka í nærri 100 ár. Því miður hefur það ekki verið farsæl saga.“. Svona byrjar pistill sem danski hagfræðingurinn Lars Christensen birti á Facebook síðu sinni í gær.Hann er mörgum Íslendingum að góðu kunnur. Hann var yfirhagfræðingur Danske Bank í Danmörku á árunum fyrir hrun íslenska fjármálakerfisins árið 2008. Hann fékk bágt fyrir frá íslenskum ráðamönnum og bankaelítu þegar bankinn dró upp svarta mynd af stöðunni í íslensku efnahagslífi.Hann lýsir því í pistli sínum hvernig efnahagsástand á Íslandi hefur þróast til hins verra frá því að Seðlabanki Íslands var stofnaður.„Þegar við Danir lítum á norsku og sænsku krónuna erum við vön því að gengið sé nokkuð nálægt 1. Þannig er það alls ekki í tilfelli íslensku krónunnar. Í dag þarf að greiða um 18