Skotárás stendur yfir í líkamsræktarstöð í Washington D.C., í um eins mílna fjarlægð frá Hvíta húsinu. Að minnsta kosti fimm manns hafa særst í árásinni. Skothvellir heyrðust í líkamsræktarstöðinni Vida Fitness í Logan Circle-hverfinu, að sögn talsmanns lögreglunnar í Washington, sem lýsti ástandinu sem óstöðugu og síbreytilegu. „ALVARLEG VIÐVÖRUN: Lögreglan er á vettvangi vegna yfirstandandi skotárásar á svæðinu við 15th...