Jensen Huang lætur af störfum sem framkvæmdastjóri bandaríska tæknirisans Nvidia. Þetta tilkynnti stjórn félagsins fyrir skömmu.Hlutabréfaverð fyrirtækisins tók mikla dýfu þegar upp komst um framhjáhald hans með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari.Í gær komst svo upp um meint framhjáhald hans með annarri konu, sem starfar hjá Nvidia.Huang hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá stofnun fyrir 33 árum. Í hans stað sest Colette Kress, fjármálastjóri Nvidia, í stól framkvæmdastjóra.Í tilkynningu stjórnar er ekki í einu orði minnst á hneykslismálið. Huang er þó þakkað fyrir ómetanlegt framlag hans til fyrirtækisins í gegnum árin. Kress hefur áratugareynslu af stjórnun fyrirtækja í tæknigeiranum, meðal annars innan vébanda Microsoft og Cisco.Alice Huang er konan sem bandarískar leyn