Fimm skotnir í Washington og byssumaðurinn lokar sig af

Fimm hið minnsta voru skotnir í árás í Washington D.C. í dag og stendur árásin enn yfir.Lögregla segist ekki vita um líðan þeirra sem urðu fyrir skoti og talið er að byssumaðurinn hafi lokað sig af í byggingu.Talið er að skotárásin hafi verið gerð í eða við líkamsræktarstöð í borginni. Sjónarvottur segir við Washington Sun að hann hafi haldið að uppblásinn æfingabolti hafi sprungið með látum áður en hann sá eitt fórnarlambanna liggja á gólfinu. Í kjölfarið hafi heyrst skothvellir sem virtust koma að utan. Vegfarendum og íbúum í grenndinni hefur verið sagt að halda sig frá vettvangi.Viðbragð lögreglu er sagt afar mikið.Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar berast.
Fimm skotnir í Washington og byssumaðurinn lokar sig af

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar