Danska ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi um umfangsmiklar skattalækkanir til að styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og hvetja til fjárfestinga. Fyrirtækjaskattur verður meðal annars lækkaður úr 22 í 19 prósent á næstu þremur árum, auk þess sem dregið verður úr ýmsum álögum og skattlagningu einstaklinga.