Bæjarstjórn Grindavíkur hefur lýst yfir vantrausti á hendur fasteignafélaginu Þórkötlu og framgöngu félagsins gagnvart GrindvíkingumÍbúafundur var haldinn í Gjánni í Grindavík í gær þar sem kynntar voru áætlanir Þórkötlu um sölu eigna til Grindvíkinga sem keyptar voru eftir að eldgos hófust nærri bænum.Bæjarstjórn Grindavíkur birtir þetta í yfirlýsingu og telur að skortur sé á skilningi á aðstæðum Grindvíkinga miðað við áætlanir Þórkötlu. Tímasetningin henti ekki fjölskyldum, verð fasteigna taki ekki mið af ástandi þeirra og telur bæjarstjórn að áhættan hvíli á þeim íbúum sem fyrstir flytja í bæinn. BÆJARBÚAR TREYSTI EKKI ÞÓRKÖTLU Þá er einnig undirstrikað að niðurstaða fundarins í gær hafi verið afdráttarlaus. Bæjarbúar treysti ekki stjórn og stjórnendum Þórkötlu og hafni endurkaupaáæt